Könnun

Hvað á ég að gera þegar ég er búin með Fjölbraut??????

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur

Gleðilegt nýtt ár

01. janúar 2009 klukkan 15:38
Já það er komið nýtt ár og ég er að blogga......eins og undanfarin ár þá var ég á Siglufirði um áramótin og það var bara ótrúlega mikið skotið upp. Ég fór þann 29 des og er bara búin að liggja með tærnar upp í loft og gera nákvæmlega ekki neitt, sem er alveg ágætt.

Eins og margir vita þá kláraði ég skólann núna í desember og ég tók 5 próf í heildina, og þau gegnu svona ljómandi vel og enkunnirnar voru eftirfarandi:

Ens 603 = 8
Lan 103 = 8
Þýs 403 = 9
Stæ 413 = 9
Íþr 3A1 = 9
Bók 103 = 10
Hvm 103 = 10
Skólasókn = 10

Ég er bara mjög sátt við minn árangur enda gerir þetta meðalenkunn upp á 9,125 og ég get ekki farið fram á neitt meira.

Planið er að fara bara að vinna eftir áramót á Sláturhúsinu á Sauðárkróki og það verður bara alveg ágætt, ég vona samt að ég komi til með að hafa einhvern tíma til þess að bruna á krókinn af og til til þess að heimsækja alla vinina mína sem ég á þar. Að vísu þá væri miklu betra ef þeir væru ALLIR á sama stað en svona er þetta nú bara.

Hvað bloggið varðar þá veit ég hreinlega ekki hvað ég kem til með að geta uppfært það mikið þar sem nettengin heim hjá mér er ekki upp á marga fiska, en það verður bara að koma í ljós.

Ég ákvað nú samt að koma með smá fréttir af  mér þannig að það sé vitað að ég sé á lífi.

Hérna er samt smá punktablogg um það hvað hefur skeð hjá mér á árinu sem er ný lokið. 

* Byrjaði í skólanum 
* Fór á magnað þorrablót
* Fór á árshátíð NFNV (sem var mjög skemmtilegt)
* Ég varð 19 ára :)
* Fór í próf í Maí
* Náði öllum prófunum mínum :,)
* Byrjaði að vinna á Sláturhúsinu
* Vann og vann og vann
* Vann í Skagfirðingarbúð í 3 vikur
* Afrekaði það að fara á 2 yndislegum hestum alla leið til Siglufjarðar
* Byrjaði á minni síðustu önn í skólanum
* Vann í Skaffó með skóla!!!
* Fór í göngur 
* Skemmti mér konunglega á Laufskálaréttarballi
* Var skráð í Ensku 603 1 og hálfri viku fyrir miðannarpróf 
* Náði miðannarprófinu í ensku :) (reyndar náði ég öllum)
* Hætti að vinna í Skaffó (13 nóv)
* Tók jólapróf
* Náði öllum prófunum mínum með glæsibrag
* Varð STÚDENT!!!!!!!!!
* Hafði það gott um jól og áramót

Þetta er svona það helsta sem ég man eftir í augnablikinu en ég ætla að enda þetta blogg mitt með því að láta fylgja mynd af mér og Helga Fannari sem var tekin í gærkveldi.  Hún er inni í myndaalbúminu sem heitir áramót 2008

kv. **Fríða Rún**



Fríða Rún
1 athugasemd

Skólinn að klárast

09. desember 2008 klukkan 15:44
 

Já sælt veri fólkið...ég hef nú ekki verið neitt sérlega dugleg að blogg hérna.

 

Ætla að reyna að bæta það...sjáum til hvernig það gengur en ég er semsagt að klára skólann núna og eins og er þá á ég bara eitt próf eftir, og þá er maður bara orðin stúdent...þetta er ekkert smá fljótt að líða.

 

Ég ákvað að búa mér til facebook síðu og hún er svona smá ástæðan fyrir því að ég hef ekki bloggað neitt sérlega mikið...þannig að fólk getur bara rætt við mig þar inni ef það þarf eitthvað að tjá sig við mig þá getur það bara gert það þar.

Er komin í geggjað mikið jólaskap....veit ekki hvar þetta endar...ég er líka komin með vinnu eftir áramót...verð að vinna á sláturhúsinu sem er alveg fínt....frábært að geta allavega fengið vinnu einhversstaðar. Veit ekki hvernig það verður með þessa utanlandsferð sem ég var búin að plana fyrir 2 árum....kannski verður ekkert af henni þar sem ástandið á landinu er ekki sem best eins og er en það verður bara að koma í ljós

En vildi bara láta vita af mér að ég væri á lífi

kv. **Fríða Rún**

Fríða Rún
Engin athugasemd

Það er allt á kafi allstaðar

27. október 2008 klukkan 09:57

Já ég verð nú bara að viðurkenna það að ég hef nú bara ekki bloggað í háa herrans tíð...ekkert blogg síðan fyrir laufskálarétt...en allavega þá var laufskálaréttarhelgin bara æði, fór í göngur á föstudeginum heima og var með punktalaust í skólanum og svo var bara farið í laufskálaréttina sjálfa þarna á laugardeginum. Ballið var náttúrulega bara snildin ein...geggjað mikið af fólki og tóm gleði í gangi...allavega er hægt að segja að það hafi ekki verið sofið mikið þessa helgina Tongue out.

Miðannarprófin voru svo í byrjun október og það var alveg ágætis undirbúningur fyrir prófin sem verða í desember...ég var hálfpartin búin að gleyma því hvernig á  að læra fyrir próf þar sem ég hef ekki verið í það mörgum áföngum sem krefjast þess að taka þurfi próf...en þau gengu samt bara mjög vel...er búin að ná öllu sem ég er búin að fá út út en samt er landafræðin ein eftir.

Ég lenti í þeim leiðindum að þurfa að skrá mig í einn áfanga í viðbót til þess að geta útskrifast um jólin þegar aðeins voru innan við 2 vikur í miðannarprófinn og það var svolítið sjokk fyrir migEmbarassed. En ég skráði mig bara í ENSKU 603 og Björn kom með þá uppástungu að ég myndi bara taka heilt próf út af því að ég var hvort sem er komin svo langt á eftir...en ég ákvað að vera þrjósk og láta mig hafa það og fara í HEL***** prófið...ég væri þá bara á sama stað og ef ég myndi ekki taka prófið  (þurfa að taka heilt próf í des) en viti menn...ég bara náði prófinu með heila 8 og ég er sko ekkert smá ánægðLaughing

Guðbjörg kom svo til Íslands þó fyrr hefði verið og tókum við gamla góða rúntinn okkar hvað gönguna varðar... það versta var við þessa heimsókn hennar var að þessi elska stoppaði allt of stutt  finnst eins og það hefði mátt verð 2 vikum lengur...en svona er þetta bara, það er heldur ekkert svo langt í að hún komi aftur, en allaveg þá áttum við góða tíma saman og skemmtum okkur konunglegaSmile.

Núna er svo allt á kafi í snjó...ég held að það hafi bara aldrei verið svona mikill snjór hérna á Sauðárkróki áður...þetta er alveg magnað. Heima er alveg slatti af snjó en það er samt ekkert neitt svakalega mikið sum staðar...það er eins og það hafi hreinlega bara skafið alveg helling upp í himinháa skafla. Þorvaldur er nú samt ekki búin að moka neitt að ráði en hann varð eingu að síður að moka fyrir mig í gær þannig að ég kæmist upp á veg!!!!

Það styttist í að skólinn klárist..það eru bara eftir 5 vikur af kennslu...þetta er ótrúlega fljótt að líða. Ég hef svo líka alltaf verið að vinna í skaffó en ég er samt að fara að hætt núna um miðjan nóvember...það verður ágætt að geta slappað aðeins af án þess að þurfa að fara í vinnuna strax eftir skóla.

Ég þarf líka að fara að huga að því að sækja um vinnu eftir áramót...finnst þetta eitthvað svo kjánalegt að vera að fara að vinna en ekki í skóla.....en einhvertímann tekur allt endaLaughing 

Ég vona að ég hafi tækifæri til þess að blogga eitthvað meira heldur en ég hef verið að gera...enda þarf nú kannski ekki mikið að bæta sig til þess að það gerist...en þangað til næst...hafið það gott

Kv. **Fríða Rún**



Fríða Rún
1 athugasemd

Laufskálarétt framundan

23. september 2008 klukkan 09:29
Já þetta líður ótrúlega hratt....september að verða búin og október tekur við.

Það er ekki búið að vera neitt lítið að gera hjá mér núna upp á síðkastið og ég virðist ekki sjá fyrir endan á því hvernig það getur hugsanlega endað. Ég er að vinna alltaf mína daga í Skaffó og það er bara fínt. Hef allavega undan við að læra þegar ég kem heim.

Núna er ég að fara heim á fimmtudaginn...er búin að fá leyfi í skólanum á föstudeginum því að ég er að fara í göngur þá...deildardalsrétt og það verður bara gaman að fá að sjá hrossin aftur eftir sumarið. Einnig kemur örugglega til með að vera rosalega gaman því það eru svo margir sem ætla að slást í hópinn með okkur og koma í afréttina auk þess að reka heim með okkur.

Ég veit að ég hef ekki verið duglegasa manneskjan við að blogga en ég verð að fara að standa mig betur...að vísu er ég búin að búa til í tölvunni minni uppgjör eftir sumarið og það eina sem er eftir með það er að setja það yfir á minniskubb og svo hérna inn því ég var sko ekki dugleg að láta vita af mér í sumar.

En ákvað að skella inn nokkrum línum

kv. **Fríða Rún**
Fríða Rún
1 athugasemd

Brjálað að gera

15. september 2008 klukkan 11:01
Já það er sko alveg óhætt að segja að það sé brjálað að gera hjá mér....en að vísu sýnist mér nú ekkert mikið vera komið á síðuna mína þannig að ég veit ekki hvað verður. En allavega ætlaði ég að láta vita af því að ég er á lífi og kem vonandi mjög fljótlega með nýtt blogg og svona það helsta sem hefur á daga mína drifið í sumar.

kv. **Fríða Rún**
Fríða Rún
1 athugasemd

Hestadagar og vika í skólann

17. ágúst 2008 klukkan 13:56
Heilt og sælt veri fólkið!!!!!

Núna fer sko að styttast í það að skólinn byrji og þá fer sko að fjölga bloggunum sem verða hérna á þessari bloggsíðu minni.

Núna eru aðeins örfáir dagar eftir af vinnunni minni en ég kem til með að hætta miðvikudaginn 20 ágúst.

Síðastliðna viku er ég svo búin að vera að fara í áföngum áleiðis til Siglufjarðar á rúsínunum mínum en það eru hestarnir mínir, ég fór bara ein af stað og teymdi einn hest með mér til að hafa til skiptanna. Ég lagði af stað síðasta laugardag og fór út í Lambanes-Reyki á fimmtudaginn og reið svo með þeim á föstudaginn alla leið yfir Siglufjarðarskarð...veðrið sem við fengum var alveg yndislegt en ókosturinn við þetta góða veður var að það var að litla flugan var tíður gestur í öllum stoppum bæði mér og hrossunum til mikils ama.

Dagskráin hérna á Sigló var svo til mikillar fyrirmyndar og það verður sett mikil pressa á Ólafsfirðinga sem eru með hestadagana á næsta ári.

Laugardagskvöldið endaði með fyrirtaks grilli og flottheitum og síðan var sungið og drukkið langt fram eftir kvöldi, við mæðgurnar létum það ekki duga því þegar allt fjörið var búið þar fórum við á barinn og haldið áfram að djamma. Við komum okkur svo heim þegar klukkan var orðin 10 minútur yfir 4 og þá vorum við búin að skutla mörgum heim sem ekki töldust nægilega ferðafærir til að nota fæturnar.

Helgin var þegar upp er staðið mjög góð og vonandi eiga þær eftir að verða fleiri svona skemmtilegar.

P.S Læt fylgja með myndir í albúminu undir Hestadagar á Sigló 2008 sem er tekin í sameiginlega reiðtúrnum sem var mjög fjölmennur, mamma smellti þessar myndir af mér en ég er einmitt með fullan munninn af harðfiski sem bragðaðist mjög vel og einnig þegar ég var komin úr reiðtúrnum.

kv. **Fríða Rún**
Fríða Rún
1 athugasemd

Sumarið langt komið

20. júlí 2008 klukkan 21:05
Já ótúrlegt en satt þá er sumarið langt komið og ekki langt þangað til skólinn byrjar....en það er annað sem er enþá ótrúlegra og það er að ég er að blogga, að vísu er ég ekkert búin að pæla í um hvað ég get bloggað. Það er samt bara út af því að ég ákvað allt í einu í gær að fara til mömmu því Karen systir mín var að halda upp á afmælið sitt. En þetta ver ður bara stutt blogg það virðast allir vera að fara í eitthvað bloggfrí þannig að ég ætla bara að láta vita af mér svona af og til...ætla að bæta þessum valmöguleika við að geta stundað nám erlendis...það er alltaf hægt að finna nýja og nýja valmöguleika

kv. **Fríða Rún**
Fríða Rún
1 athugasemd

Ný og fersk skoðunarkönnun

05. júlí 2008 klukkan 17:13
Já það er komin ný skoðunarkönnun þó fyrr hefði verið....það verður gaman að sjá niðurstöðuna úr þessari!!!!!

Kem með blogg vonandi mjög fljótlega

kv **Fríða Rún**
Fríða Rún
Engin athugasemd

Ég er enþá á lífi

29. júní 2008 klukkan 18:17

Já ég verð að viðurkenna það að ég hef ekki verið sú duglegasta við að blogga síðan skólinn hætti...en það er að vísu mjög góð ástæða fyrir því, það er m.a. búið að vera brjálað að gera hjá mér í vinnunni og ef ekki í henni þá bara hérna heima og svo líka það að ég hef ekki komist í neina tölvu til þess að geta bloggað...en ég ætla að vísu að bæta þetta upp með einu stóru alsherjar bloggi...þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var ánægð að sjá commentin hjá ykkur því þá fyrst fór mér að finnast eins og þetta blogg mitt þjónaði einhverjum tilgangi, Ég kem svo sjálfsagt til. með að blogga eitt stórt blogg um sumarið en ég ætla allavega að lofa að reyna að blogga þegar ég get.

Annars er allt fínt að frétta af mér og sumarið búið að vera æðislegt, vona að það sé eins hjá ykkur öllum.

En ég ætla að vera búin að undibúa mig betur fyrir næsta blogg þannig að ég geti bara gert copy og svo paste.

Knús frá mér til ykkar allra...ég sakna ykkar líka mikið

kv. **Fríða Rún**

p.s. Ég er búin að breyta bakgrunninum fyrir þig Guðný Glottandi

Fríða Rún
2 athugasemdir

Síðasti skóladagurinn

30. apríl 2008 klukkan 10:58

Núna er síðasti skóladagurinn fyrir próf runnin upp. Að vísu er ég það heppin að það er ekki mikill skóli hjá mér því það er mest allt búið sem ég er í...að vísu er fráls mæting í eitthvað af tímunum mínum núna í dag enda ætla ég að fara heim núna upp úr hádeginu.

Fer í próf á mándaginn, fimmtudaginn og föstudaginn og þá er ég komin í sumarfrí...mér finnst þetta vera búið að vera ótrúlega fljótt að líða þetta skólaárið, en oftast er það vorönnin sem er lengur að líða en ekki í þetta sinn, það er annars gaman að segja frá því að þetta er síðasta vorönnin sem ég kem til með að vera hér í þessum skóla.


Er að klára við að ljúka ritgerð í uppeldisfræði 303 en hún verður nálægt 20 blaðsíðum þegar hún verður öll komin saman. Ekki slæmt það enda er þetta bara eins og helmingurinn af B.A ritgerð (eða eru þær ekki annars 40 bls???).

Það er nú ekki margt núna sem bendir til þess að sumardagurinn fyrsti sé liðin, núna er hvasst og kalt úti, og meira að segja í gær þá var slydda sem er nú ekki beint vorlegt. Eins gott að litlu lömbin okkar séu enþá að kúra inn í maganum á mömmum sínum því þar er sko ábyggilega næginlega heitt fyrir þau.

Ég veit að ég hef ekki verið neitt sérlega dugleg að blogga núna upp á síðkastið en það er bara ein ástæða fyrir því og það er að mig skortir tíma, tíma og aftur tíma.... það virðist sko ekki vera nóg af honum þegar maður er upptekin.

En þið vitið allavega að ég er ekki dáin en ég veit ekki hvenær næsta blogg gæti slæðst inn hérna....en þið verðið að vera dugleg að commenta (Já og Guðbjörg ég var búin að commenta alveg fullt á síðuna þína en svo vildi það ekki staðfestast...ég var ótrúlega reiðÖskrandi)

Kveð að sinni

**Fríða Rún**

Fríða Rún
1 athugasemd